Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar 60 ára
Sunnudaginn 24. nóvember hélt Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar upp á 60 ára
afmæli sitt, en félagið var stofnað þann 22. nóv 1953.
Félagsmönnum og velunnurum félagsins var boðið til sannkallaðrar stórveislu
í setustofu Sjúkrahúss Siglufjarðar.
Megin tilgangur félagsins, sem hefur haldið sér frá stofnun, hefur verið sá
að safna fyrir fé til að kaupa búnað sem gagnast starfsfólki sjúkrahússins
sem og vistmönnum.
Magðalena S. Hallsdóttir var heiðruð fyrir vel unnin störf í þágu félagsins
en hún var formaður stjórnar Kvenfélags Sjúkrahúss Siglufjarðar í 22 ár.
Þóru Jónsdóttir var einnig færður blómvöndur fyrir vel unnin störf.
Sjúkrahúsinu var einnig fært ferlivöktunartæki að gjöf við þetta tækifæri.
Glæsilegt félag og eitthvað sem Siglfirðingar vilja alls ekki vera án.
Hrönn Einarsdóttir sendi okkur upplýsingar og myndir við þessa frétt.
Brynja Stefnánsdóttir, Magðalegna S. Hallsdóttir og Björg Friðriksdóttir
Stjórn kvenfélagsins. Björg Friðriksdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Sólrún Júlíusdóttir, Helen Meyers, Þóra Jónsdóttir, Lísa Dögg Ómarsdóttir og Ólafía Anna Þorvaldsdóttir.
Ólafía Anna Þorvaldsdóttir
Ólafía Anna og Anna Sigurbjörg Gilsdóttir
Konráð Karl Baldvinsson forstjóri HSF
Anna Sigurbjörg Gilsdóttir, Valþór Stefánsson og Konráð Karl Baldvinsson.
Athugasemdir