Siglómótið í Öldungablaki
Siglómótið í Öldungablaki byrjaði kl. 19 á föstudagskvöldinu á Sigló og síðan kl. 8 á laugardeginum. Á Ólafsfirði voru spilaðir 12 karlaleikir og 3 leikir í 1. deild kvk frá kl. 8.35-11.30 á laugardeginum.
Þátt tóku 31 lið frá Laugarvatni, Reykjavík og af Norðurlandi allt austur að Kópaskeri.
Úrslit Siglómótsins 2012 eru eftirfarandi :
1. deild - Eik kvenna, Fylkir karla.
2. deild kvk - Rimar B.
3 deild kvk - Súlur 5.
Deginum lauk svo í Kaffi Rauðku með góðum mat, söng, gleði og dunandi dansi fram á nótt eins og vera ber þegar blaköldungar koma saman.
Kunnum við öllum þátttakendum bestu þakkir fyrir komuna, frábæran mótsanda og hjálpina við að láta allt ganga upp.
Hyrnumenn og Súlumeyjar vona að allir hafi komist heilir heim og hlökkum til að sjá ykkur aftur á Trölla 2012 í vor.
Texti og myndir: GJS
Athugasemdir