Söngsveitin Fílharmónía með tónleika í Siglufjarðarkirkju laugardaginn 17. maí kl. 17:00
sksiglo.is | Almennt | 14.05.2014 | 15:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 170 | Athugasemdir ( )
Stjórnandi kórsins er Magnús Ragnarsson og eru meðlimir kórsins 65
talsins.
Það verða fleiri en fimmtíu söngvarar með
í þessarri söngferð, enda almennt mikil tilhlökkun í hópnum yfir að heimsækja Norðurlandið fagra og syngja fyrir íbúa
Tröllaskaga og Akureyringa.
Kórinn er að undirbúa sig undir kórakeppni í Llangollen, Wales, í júlí næstkomandi og verður
því svipuð efnisskrá flutt á tónleikunum og verða í keppninni.
Á efnisskránni, sem er býsna fjölbreytt, eru bæði íslensk og erlend verk, svo sem eftir norska
tónskáldið Ola Gjeilo, Randall Z. Stoope, Báru Grímsdóttur, Gunnstein Ólafsson og Þóru Marteinsdóttur (sem syngur einmitt með
kórnum) svo fátt eitt sé nefnt.
Tónleikarnir verða sem hér segir:
Siglufjarðarkirkja: Laugardagur 17.maí kl 17. Miðaverð er 1500 KR.
Akureyrarkirkja: Sunnudagur 18.maí kl 16, ásamt Kór Akureyrarkirkju, sem er stjórnað af Eyþóri
Inga Jónssyni.
Vonandi sjáum við sem flesta.
Athugasemdir