UÍF auglýsir vinnufund fyrir aðildarfélög
sksiglo.is | Almennt | 21.11.2012 | 10:31 | Gunnar Smári Helgason | Lestrar 118 | Athugasemdir ( )
UÍF auglýsir vinnufund fyrir aðildarfélög um Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ mun koma á vinnufund í Vallarhúsinu Ólafsfirði kl. 18 í kvöld (21. nóvember).
Hann mun svara fyrirspurnum og ráðleggja um þá vinnu sem þarf að fara fram hjá aðildarfélögum til að verða Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Á heimasíðu ÍSÍ er að finna handbók með leiðbeiningum og mun hann renna yfir sýnishandbók sem hann hefur sett saman fyrir þau félög sem eru að hefja þessa vinnu.
UÍF vonast til að sjá fulltrúa sem flestra aðildarfélaga.
Athugasemdir