Bókasafnsdagurinn 2014: Lestur er bestur
"Bókasafnsdagurinn 2014: Lestur er bestur" verður haldinn 8.sept næstkomandi á Alþjóðadegi læsis.
Markmið dagsins er tvíþætt:
að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu
vera dagur starfsmanna safnanna.
Starfsfólk bókasafnsins vill bjóða íbúum Fjallabyggðar að njóta þessa dags með
okkur og hvetjum við alla til að kíkja við þennan dag.
Í Bókasafninu í Ólafsfirði ætlum við að heiðra minningu Aðalheiðar Karlsdóttur frá Garði með því að
stilla upp verkum hennar ásamt gömlum úrklippubókum sem gaman er að fletta í. Hugmyndakassi verður settur upp á barnadeildinni þar sem við
biðjum fólk um hugmyndir að nafni á nýju fínu barnadeildina. Öll börn fá bókamerki dagsins ásamt lestrardagbók.
Í Bókasafninu í Siglufirði ætlum við að taka í notkun nýtt lesherbergi (fyrrum Bjarnastofu). Þar verður fyrirtaks aðstaða hvort
sem er fyrir grúskara eða námsmenn. Nostalgían verður ráðandi þennan dag. Sett verður upp smá sýning á gömlum
barnabókum og gömlum siglfirskum tímaritum sem gefin voru út hér á árum áður. Einnig verður hægt að kíkja í
gamlar spjaldskrár og pikka á gömlu ritvélina sem notuð var til að merkja safnkostinn.
Í tilefni dagsins ætlum við að bjóða nýjum lánþegum frítt lánþegaskírteini í einn mánuð!
Heitt á könnunni, safar fyrir börnin og smá nasl.
Opið þennan dag frá 9-12 og 13-17
Sjá líka á vef safnsins hér : http://bokasafn.fjallabyggd.is/is/forsida
Athugasemdir