ABC-Skólahjálp í MTR
sksiglo.is | Almennt | 15.05.2014 | 13:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 235 | Athugasemdir ( )
Á vef Menntaskólans á Tröllaskaga kemur það fram að nemendur
í ABC-skólahjálp afhentu þann 14. maí afrakstur starfs síns á önninni við söfnun fyrir börn í Kitetika
grunnskólanum í Úganda.
Aðalbjörg Kristjánsdóttir, móðir Guðbjargar
Hákonardóttur, starfsmanns ABC í Úganda veitti því sem safnaðist viðtöku fyrir hönd samtakanna.
Guðbjörg heimsótti skólann í janúar og hafði eldmóður
hennar mikil áhrif á nemendur. Um fjögur þúsund börn eru í ABC skólum í Úganda.
Söfnunin gaf meðal annars af sér 20 borðtölvur með skjám og
lyklaborðum. Gefandi er Íslandsbanki. Tölvurnar fara á nytjamarkað ABC í Reykjavík en andvirðið rennur til Kitetika grunnskólans. KF,
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar gaf 21 íþróttbúning og afhenti Óskar Þórðarson, íþróttakennari þá fyrir
hönd félagsins. Búningarnir verða sendir til Úganda, fyrsta spölinn með Flytjanda sem er meðal styrktaraðila söfnunarinnar. Þá
söfnuðu nemendur fimmtíu og fimm þúsund krónum með veitingasölu og samskotum.
Nemendurnir segjast hafa lært um kærleikann og hvað það sé gott að
geta hjálpað öðrum. Þau hafi líka lært um ástandið hjá börnum í Úganda. Niðurstaðan sé að íslensk
ungmenni eigi að vera glöð með sitt góða líf og það sem þau hafa. Kennari í áfanganum var Brynjar Kristjánsson.
Sjá nánari umfjöllun og myndir á vef MTR hér.
Mynd við frétt fengin af vef MTR.
Athugasemdir