Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar sýningu í Árósum, Danmörku
Innsent efni.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar sýninguna Án Umhugsunar á Institut for (X) í Árósum, Danmörku.
Hún hefur dvalið þar síðastliðnar tvær vikur og unnið að mörgum minni verkum sem fjalla um sjálfsmyndina og hvernig óstjórnleg þörf til að skapa endurspeglar sjálfið.
Verkin eru unnin úr fundnu efni m.a. plast, pappír, tré, járn, spottar og margt fleira. Aðalheiður talar um að í þessum verkum hugsi hún með höndunum.
Sköpunargleðin tekur völdin og útkoman er óskilgreindur afrakstur hrárrar sköpunar. Hún hverfur aftur til óttalausra hugmynda barnsins á sama tíma og yfirvegaða og reynsluríka listakonan skín í gegnum verkin.


Athugasemdir