ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU í dag kl 14

ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU í dag kl 14 HLYNUR HALLSSON 8. mars - 6. apríl 2014 Opnun laugardaginn 8. mars kl. 14-17 Alþýðuhúsið á Siglufirði Kompan,

Fréttir

ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU í dag kl 14


Innsent efni. 


HLYNUR HALLSSON


8. mars - 6. apríl 2014

Opnun laugardaginn 8. mars kl. 14-17

 

Alþýðuhúsið á Siglufirði

Kompan, Þormóðsgötu 13, 580 Siglufirði


Hlynur Hallsson opnar sýninguna ALÞÝÐUSÝNING Í ALÞÝÐUHÚSINU í Kompunni í Alþýðuhúsinu á Siglufirði laugardaginn 8. mars kl. 14-17. Hlynur sýnir nokkur alþýðleg spreyverk sérstaklega gerð fyrir Alþýðuhúsið og alþjóðlegan baráttudag kvenna sem er einmitt þann 8. mars.


Hlynur Hallsson er fæddur á Akureyri 1968. Hann stundaði myndlistarnám á Akureyri, í Reykjavík, Hannover, Hamborg og í Düsseldorf. Hann hefur verið nokkuð iðinn við að setja upp sýningar og hann tók þátt í samsýningum í firstlines gallery og Halle50 í München á síðasta ári og síðasta einkasýning hans var Sýning - Ausstellung - Exhibition í Kartöflugeymslunni í Listagilinu á Akureyri.  Hlynur gaf út bókina MYNDIR - BILDER - PICTURES árið 2011 með 33 ljósmynda- textaverkum. Hann hefur einnig verið sýningarstjóri fjölda sýninga eins og TEXT sem sett var upp hjá Kuckei+Kuckei í Berlín haustið 2011. Hann var einnig meðal stofnenda Verksmiðjunnar á Hjalteyri þar sem settar hafa verið upp sýningar undanfarin sex ár. Hlynur er sjálfstætt starfandi sýningarstjóri og myndlistarmaður og einnig listrænn ráðgjafi hjá Flóru á Akureyri.


hlynurHlynur hlaut verðlaun Kunstverein Hannover 1997, verðlaun ungra myndlistarmanna í Neðra-Saxlandi 2001 og verðlaun Sparda Bank árið 2006. Hann hefur nokkrum sinnum hlotið starfslaun myndlistarmanna og var bæjarlistarmaður Akureyrar árið 2005. Hlynur vinnur með aðstæður, texta, innsetningar, ljósmyndir, gjörninga og hvað eina, allt eftir því sem hentar í hverju tilfelli. Að þessu sinn sýnir Hlynur ný spreyverk gerð fyrir Alþýðuhúsið á Siglufirði auk bókverks sem sýningargestir geta tekið þátt í að skapa. Nánari upplýsingar um Hlyn og verk hans er að finna á heimasíðunni hallsson.de og einnig á bloggsíðunni hlynur.is


Myndlistarkonan Aðalheiður S. Eysteinsdóttir hefur skipulagt fjölmargar myndlistarsýningar og viðburði í Alþýðuhúsinu frá því hún stóð fyrir því að húsið var gert upp fyrir nokkrum árum.


 

Sýningin stendur til 6. apríl 2014 er opin kl. 14-17 daglega, eftir samkomulagi við Aðalheiði í síma 865 5091, eða þegar skilti er úti.

Nánari upplýsingar um sýninguna veitir Hlynur í síma 659 4744 og hlynurhallsson@gmail.com

 

 


Athugasemdir

12.mars 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst