Árgangur 1998 í vinnuskóla Fjallabyggðar boðaður til vinnu
Árgangur 1998 í vinnuskóla Fjallabyggðar boðaður til vinnu
Ákveðið hefur verið að bjóða árgangi 1998 að mæta einni viku fyrr í vinnuskóla.
Þeir sem hafa skráð sig í vinnuskóla Fjallabyggðar fæddir 1998 gefst tækifæri á að mæta einni viku fyrr og vinna eftir
hádegi vikuna 24.-28. júní.
Ekki er þörf á skráningu sérstaklega, heldur nægir að mæta til vinnu mánudaginn 24. júní við
þjónustumiðstöð/ áhaldahús.
1. júlí hefst svo þeirra tímabil og fá þau þá vinnu allan daginn til a.m.k 2. ágúst.
Ef spurningar vakna gefur undirritaður svör við þeim.
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og tómstundafulltrúi
Athugasemdir