Bćjarstjórastóllinn mátađur og Ráđhúsiđ ađ verđa ljómandi fínt

Bćjarstjórastóllinn mátađur og Ráđhúsiđ ađ verđa ljómandi fínt Ég átti erindi í Ráđhús Siglufjarđar í síđustu viku. Ţegar ég kom upp á ađra hćđina gerđi

Fréttir

Bćjarstjórastóllinn mátađur og Ráđhúsiđ ađ verđa ljómandi fínt

 
Ég átti erindi í Ráðhús Siglufjarðar í síðustu viku.
 
Þegar ég kom upp á aðra hæðina gerði ég mér nokkuð góða grein fyrir því að ekki væri allt eins og það ætti að vera og ég rétt sá í kollinn á Biddý í annars frekar myrkvuðum gangi inn á milli allskonar drasls.
 
Ég velti því fyrir mér hvort þetta væri svipað og að labba í frumskógi því það var allt einhvernveginn út um allt. Ég flækti mig pappír og möppum á leiðinni inn og ég hugsaði með mér að nú væri gott að hafa sveðju til að höggva sig í gegn um pappírs og möppu frumskóginn. Biddý sat þarna í rökkrinu og þau Kristinn J. Reimarsson og Hulda Magnúsar sátu inn á milli alls konar pappírsblokka, pottablóma og ég veit ekki hvað og hvað. Mér datt í hug "Hvar er Valli??" bækurnar þegar ég spurði "Hvar er Óli Stellu??"  sem mér var bent á á milli einhverskonar bæjarskrifstofuburkna og pappírsblokka.
 
Ég fann þó Arnar Þrastarson fljótlega og átti við hann stutt en þó ljómandi gott spjall og drengurinn er vægast sagt hjálplegur og viðmótsþýður. (Þetta á ekki að vera háð eða spott, þetta er einfaldega bara heilagur sannleikur).
 
Á leiðinn út var mér litið inn á kaffistofu og sá þá mér til nokkurar ánægju að þar var búið að planta skrifborði og þar sat Ármann alveg ljómandi sáttur við að vera svona stutt frá kaffikönnunni og kökunum á borðinu.
 
Eftir stutt og gott spjall við Ármann trítlaði ég upp á efri hæð ráðhússins þar sem hamarshögg og læti tóku á móti mér. Ég tilkynnti stoltur að ég væri kominn til að máta nýja bæjarstjórastólinn og bað um leiðbeiningar til að komast í hann sem mér voru að sjálfsögðu veittar af málara í stuttbuxum. Ég verð að taka það fram að miðað við hvað þetta er allt að verða ljómandi glæsilegt mætti nú spandera ögn meira í stólinn. Það væri kostur fyrir mig að geta hallað honum afturbak í framtíðinni svo það verði ögn tilkomumeira þegar ég horfi yfir sólgleraugun til að svara spurningum einhvers bæjarbúa eða bæjarfulltrúa.
 
Þegar ég tek við bæjarstjórastöðunni þá ætla ég að láta titla alla bæjarfulltrúa "lærisveina" bara svona upp á skemmtana og fróðleiksgildið og til þess að þeir haldi sig á mottunni. Ég sé þetta fyrir mér svona á já.is og Kiwanissímaskránni : Jón Jónsson lærisveinn alþýðunnar hjá Fjallabyggð.
Svo sé ég mig fyrir mér labba um götur bæjarins með pípuhatt, staf og sápukúlupípu til þess að bjóða fólk velkomið til Ólafsfjarðar fyrir hádegi og Siglufjarðar eftir hádegi annan hvern dag til skiptis og svo öfugt (og ég er að verða kominn í hring með þessa setningu en ætla samt aðeins að halda áfram) til að gæta sanngirnis í þessu öllu saman. Svo verða viðtalstímar á öðrum hvorum bekknum á Ráðhústorginu og við Tjörnina í Ólafsfirði í 2 klukkutíma í viku. Klukkutíma á hvorum stað. Ég ætla samt að vera í fríi um helgar plús það að ég þarf sumarfrí og svo þarf ég aftur frí til að komast á Öldungamótið í blaki. Svo ætla ég að fá mann eða konu í að halda ræður fyrir mig og klippa á borða vegna þess að ég er alveg ómögulegur í því og hreinlega nenni því ekki. En ekki hafa áhyggjur, hans eða hennar laun verða tekin af mínum. Ég er reyndar ennþá að móta hugmyndafræðina í kring um þetta allt saman en þetta kemur í rólegheitunum og ég hef alveg heilan helling af frábærum hugmyndum sem þið eigið eftir að verða alveg ljómandi sátt og ánægð með.
 
En úr einu í alveg hreint allt annað. Bæjarskrifstofurnar eru að veðra alveg ljómandi fínar ef þær eru hreinlega ekki bara orðnar ljómandi fínar og breytingarnar allar þær glæsilegustu.
 
bæjóHér sést í Biddý í rökkrinu.
 
bæjóOg svo Hulda Magnúsar.
 
bæjóHér er svo Kristinn J. Reimarsson til hægri á mynd og svo er Óli Stellu þarna vinstra megin á myndinni við bæjarskrifstofuburknann eða fresíurnar eða hvað þetta blessaða blómadót heitir. 
 
bæjóArnar Þrastarson. Hann var nú ekki týndur þessi öðlingur.
 
bæjóÁ efri hæðinni er allt að gerast. Hugsanlega er þetta allt saman allt orðið klárt núna því félagsmiðstöð bæjarstjóra var víst hérna um helgina.
 
bæjóHér er svo svona eitt og annað smálegt.
 
bæjóDoddi málari og Addi múr alveg hreint eldhressir.
 
bæjóMark Duffield var alveg kampakátur og virkilega ánægður með gengi Aston Villa. Ég held allavega að hann haldi með Aston Villa eins og ég. Allavega ætti hann að gera það enda fótboltaskynsamur maður með eindæmum.
 
bæjóSverri, Erla og Mark að dást að þeirri hugmynd minni um að verða næsti bæjarstjóri.
 
bæjóErla Svanbergs er alltaf hress og kát.
Og hún varð sérstaklega hress og kát þegar ég sagði henni frá áformum mínum um bæjarstjóarstöðuna.
 
bæjóÞað á eftir að birta ansi mikið til á bæjarskrifstofunum eftir breytingarnar.
 
bæjóHérna á eftir að taka til.
 
bæjóEyjólfur Bragi kom til að tékka hvort Addi væri ekki örugglega að vinna.
 
bæjóOg hér er Addi að hundskamma Eyjó. Mér reyndar sýnist Eyjó ekkert kippa sér upp við þetta.
 
bæjóÞað verður alveg sannkallaður lúxus að skreppa á þetta klósett með blaðið eða iPadinn þegar það verður tilbúið í framtíðinni. Og þá að sjálfsögðu í yfirvinnu. 
 
bæjóOg svo mátaði ég að sjálfsögðu Stólinn. Hann er frekar svona stífur finnst mér. Ég get svosem bara komið með minn stól sjálfur, það er ekkert vandamál.
 
bæjóÞað væri hægt að mála bæjarstjóra mynd eftir þessari mynd. Þess ber að geta að það var málari í stuttbuxum sem tók þessar myndir af mér.
 
 
 

Athugasemdir

26.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst