Barbie-skór Bendtner vöktu litla lukku
visir.is | Íţróttir | 25.11.2008 | 11:13 | | Lestrar 330 | Athugasemdir ( )
Svo virðist sem danski framherjinn Nicklas Bendtner hjá Arsenal hafi misst af því þegar William Gallas kallaði á meiri hörku í leikmannahóp
liðsins á dögunum.
Gallas missti fyrirliðabandið og stöðu sína í liðinu um helgina þegar hann kallaði félaga sína of lina og gagnrýndi þá
harðlega í fjölmiðlum í síðustu viku.
Bendtner virðist hafa misst af heröskri Frakkans, því hann frumsýndi nýja takkaskó í leiknum við Manchester City um helgina. Þeir voru Barbie-bleikir eins og sjá má á myndinni með fréttinni. Arsenal tapaði leiknum 3-0 fyrir Robinho og félögum, sem sýndu prýðilega spilamennsku í leiknum á meðan Arsenal menn voru heillum horfnir. Skórnir sem um ræðir eru frá Nike og kallast Mercurial Vapor Rosas. Það var Frakkinn Franck Ribeiry hjá Bayern Munchen sem lék í auglýsingaherferðinni í kring um skóna á sínum tíma, þar sem hann spígsporaði um í þeim undir þemalagi kvikmyndanna um Bleika Pardusinn.

Athugasemdir