Bein útsending á fm.trolli.is frá Ljóđasetrinu í dag.
sksiglo.is | Afţreying | 02.07.2013 | 13:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 320 | Athugasemdir ( )
Bein útsending á fm.trolli.is frá Ljóðasetrinu í dag.
Bein útsending frá fm.trolli.is frá Ljóðasetrinu verður í dag þriðjudaginn 2. júlí. Útsendingin hefst klukkan 16:00 og munu Steini Svein, Steini Bertu eða Steini Píta og Gunnar Smári sjá um þá útsendingu.
Bein útsending frá fm.trolli.is frá Ljóðasetrinu verður í dag þriðjudaginn 2. júlí. Útsendingin hefst klukkan 16:00 og munu Steini Svein, Steini Bertu eða Steini Píta og Gunnar Smári sjá um þá útsendingu.
Fjallbyggðingar geta hlustað á 103,7 MHz og svo að sjálfsögðu á fm.trolli.isFyrir brottflutta Fjallbyggðinga og aðra sem hafa brennandi
áhuga á að hlusta á fm.trolli.is geta þeir hlustað á netinu á heimasíðu Trölla.
Formleg opnun Ljóðasetursins er í dag og mun fyrsta gestaskáld sumarsins sem er Sigurður Pálsson rithöfundur lesa úr verkum sínum.
Lesturinn hefst kl. 17:00 og ræðir við gesti um verk sín.
Sigurður hefur gefið út 15 ljóðabækur, 3 skáldsögur og 2 endurminningarverk og 11 leikverk hans hafa verið sviðsett. Sigurður hefur þýtt tuttugu og fimm verk úr frönsku og einnig tvö leikverk eftir Arthur Miller og ljóð hans hafa verið þýdd á tuttugu tungumálum.
Ljóðasetrið verður opið alla daga til 15. ágúst kl. 14.00 – 17.30 og alla daga kl. 16.00 er boðið upp á lifandi viðburði.
Athugasemdir