Föstudag 21:00 - Rauðkubíó - Eldfjall
sksiglo.is | Viðburðir | 07.10.2011 | 20:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 384 | Athugasemdir ( )
Eldfjall sýnd í Rauðkubíói föstudag klukkan 21:00.
Kvikmyndin Eldfjall, framlag Íslands til óskarðsverðlaunanna 2011, verður sýnd á sérstakri heiðurssýningu á Siglufirði þann 7. október næstkomandi í nýlega standsettum bíósal Rauðku í bláa húsinu við smábátahöfnina. Verður það fyrsta sýningin í Rauðkubíói.
Það er enginn annar en Siglfirðingurinn Theodór Júlíusson sem fer með aðalhlutverk í myndinni ásamt Margréti Helgu Jóhannsdóttur.
Myndin hefur nú verið sýnd á stórum kvikmyndahátíðum erlendis og má þar nefna Cannes, RIFF, Karlovy Vary og Toronto International Film Festival þar sem hún hefur fengið lof gagnrýnenda.
Tímasetning og miðasala nánar auglýst síðar.
Sýnishorn úr myndinni má sjá hér að neðan.

Athugasemdir