Bítlar í Bátahúsinu föstudaginn langa
Bítlar í Bátahúsinu föstudaginn langa
Tal og tónar í bland við myndasýningu á tjaldi.
Föstudaginn langa, þann 29. mars nk. ætlar Hljómsveitin Vanir Menn ásamt bítlasöngvaranum Ara Jóns úr gullaldarhljómsveitinni Roof
Tops að stíga á þilfar Týs í Bátahúsinu og halda þar heilmikla bítlatónleika af tilefni þess að hálf öld
er nú liðin síðan að hljómsveit allra hljómsveita gaf út sína fyrstu LP plötu. Þetta verða engir venjulegir tónleikar,
því gömlu góðu lögin munu hljóma í bland við stórskemmtilega fróðleiksmola ásamt myndefni sem tónleikagestir munu
geta fylgst með á stóru tjaldi yfir höfðum meðlima hljómsveitarinnar.
Hljómsveitina skipa þeir Magnús Guðbrandsson, Birgir Ingimarsson, Leó Ólason og sérlegur styrktaraðili bandsins að þessu sinni er
gítarleikarinn Grímur Sigurðsson sem spilaði lengi með Ingimar Eydal og síðar Ragga Bjarna á Hótel Sögu. Ara þarf vart að kynna,
því sá hluti þjóðarinnar sem kominn er til vits og ára hefur þekkt vel til hans allt síðan hann söng einn mesta risasmell
blómatímabilsins og hippaáranna Söknuður með Roof Tops árið 1969. Bítlalög eru hans sérgrein og hann hefur sungið þau
á óteljandi bítlatónleikum sem haldnir hafa verið undanfarin ár eða kannski mætti frekar segja undanfarna áratugi. Tónleikarnir eða
skemmtunin byrjar kl 20:00 og er forsala miða í Siglósport.
Athugasemdir