Börnum og unglingum félagsmanna boðið í Héðinsfjarðará
sksiglo.is | Viðburðir | 25.07.2014 | 17:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 542 | Athugasemdir ( )
Það er gaman að renna fyrir fiski þegar maður er ungur að árum eða í anda. Hver man ekki eftir því að hafa rennt fyrir fiski með pabba sínum við eitthvað vatn eða á í grennd við heimilið, frábær fjölskyldustund. Á morgun, föstudag, ætlar Stangveiðifélagið að bjóða börnum og unglingum félagsmanna að koma og renna fyrir fiski í hinni margrómuðu Héðinsfjarðará.
Félagsmenn eru vinsamlegas beðnir að tilkynna þáttöku til Þorgeirs Bjarnasonar í síma 861-5980.
Athugasemdir