Bræður í útlegð – Í Ljóðasetrinu
sksiglo.is | Almennt | 20.02.2014 | 14:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 295 | Athugasemdir ( )
Innsent efni.
Föstudaginn 21. febrúar kl. 17.00 verður dagskrá á Ljóðasetri Íslands á Siglufirði þar sem bræðurnir Elfar Logi og
Þórarinn Hannessynir munu varpa ljósi á nokkra útilegumenn Íslandssögunnar.
Vitað er að bæði Gísli Súrsson og Fjalla-Eyvindur munu líta við og ekki er ólíklegt að Skugga Sveinn og Ketill Skrækur muni
kveðast á auk fleiri óvæntra atriða.
Allt verður þetta í gamansömum dúr þó undirliggjandi séu grimm örlög, harðræði og hetjudáðir.
Aðgangur er ókeypis – Kaffi á könnunni
Athugasemdir