ChitoClear sára-sprey frá Primex og íslenska landsliðið á HM í Sviss

ChitoClear sára-sprey frá Primex og íslenska landsliðið á HM í Sviss Fulltrúar frá Primex  eru nýkomnir heim af stórglæsilegu heimsmeistaramóti íslenska

Fréttir

ChitoClear sára-sprey frá Primex og íslenska landsliðið á HM í Sviss

Sigríður Vigfúsdóttir markaðsstjóri við kynningarbásinn.
Sigríður Vigfúsdóttir markaðsstjóri við kynningarbásinn.
Fulltrúar frá Primex  eru nýkomnir heim af stórglæsilegu heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Brunnadern í Sviss. Primex var þar með bás í samvinnu við útflutningsráð Íslands með það markmið að kynna og markaðsetja ChitoClear sáragel- og sprey.
Sigríður Vigfúsdóttir segir okkur nánar frá ferðinni.

Það er okkur mikill heiður að Dr. Susanne Braun yfirdýralæknir íslenska landliðsins skyldi hafa valið að nota ChitoClear til meðhöndlunar á keppnishrossunum. Í keppnum sem þessum er yfirleitt um að ræða ýmis smámeiðsli svo sem skeinur á fótum og særindi í munnvikum sem getur verið erfitt að eiga við þegar mikið álag er á hrossunum.



Einnig áttum við fundi með fjölda af dýralæknum og eigendum hestabúgarða í Evrópu þar sem við kynntum fyrir þeim vöruna og fyrirtækið. Það er skemmst frá því að segja að mikill áhugi var á þessu undraefni eins og margir kjósa að kalla það.

Til gamans má geta að í Sviss spurðist út að efnið væri gott við sólbruna. Allmargir lentu í því að brenna illilega í þeirri miklu sól og hita sem þarna var. Heilmikið rennirý var á básinn okkar af sólbrenndu fólki sem notaði gelið og töldu það hafa bjargað sér frá slæmum bruna.
Enda er efnið gott við öllum sköðum á húð hvort sem um ræða lítil og stór dýr eða okkur mannfólkið



Þetta sama efni var sett á markað hér á Íslandi núna í vor og hefur það gengið vonum framar. Ég held að ég geti fullyrt að svo til flestir dýralæknar eru farnir að nota efnið sem er góður gæðastuðull því það er alls ekki auðvelt að komast inn fyrir þröskuldinn með nýungar þegar komið er að heilsufari og velferð dýra.

Í lokin má geta þess að efnið fæst í all flestum hestavöruverslunum, hjá dýralæknum og að sjálfsögðu í Siglufjarðarapóteki enda er efnið algjörlega Siglfirsk framleiðsla.




Athugasemdir

22.desember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst