Dæmigert íslenskt tillitsleysi
sksiglo.is | Greinar | 09.07.2014 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 1586 | Athugasemdir ( )
Sú
umgjörð sem tekist hefur að skapa um smábátahöfnina á Siglufirði er einstök. Þannig er það hrein upplifun að sitja undir
húsvegg veitingastaðanna, njóta góðra veitinga í sól og sumaryl og horfa á fjallahringinn og bátana. Iðandi hafnarlíf og menn
jafnvel léttklæddir að leika strandblak. Já það er mikil breyting orðin á frá því að ég og Gunnar Friðriksson heitinn,
ekki fermdir, vorum að henda vænum þorskum upp á bryggjuna úr trillu sem við áttum og keyra á hjólbörum til Matta fisksala. Og við
hliðina var Gústi guðsmaður að landa úr sinni trillu.
Það
er með ólíkindum þegar maður verður vitni að því að bílum sé lagt beint fyrir framan gesti sem þarna eru. Þetta á
einnig við þegar aðeins er setið innan dyra. Þannig hef ég lent í því að sitja ásamt konunni við glugga á Hannesi Boy í
fallegu haustveðri þegar bíl var ekið alveg að glugganum og fólk kom inn að borða. Slíkt tillitsleysi kemur manni hreint út sagt í vont
skap.
Meðfylgjandi mynd er nokkuð dæmigerð fyrir það sem málið gengur út á. Það að þessi mynd varð fyrir
valinu á sér þá skýringu að það virðist vani ökumanns þessa bíls að leggja þarna í hádeginu. Þegar
myndin var tekin sátu útlendingar við hlið mér og reyndu að fanga umhverfið án þess að bíllinn sæist. Það var hins vegar
erfitt eins og sjá má. Það á ekki að þurfa ljótt bannskilti til að breyta þessu. Smá tillitssemi ætti að nægja.
Það virðist hins vegar stundum vera djúpt á henni hjá mörgum Íslendingum.
Valtýr
Sigurðsson
Athugasemdir