Dagskrá Hreyfivikunnar – MOVE WEEK
sksiglo.is | Almennt | 29.09.2014 | 00:54 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 178 | Athugasemdir ( )
Mánudagur 29. september
- Opið fyrir alla á þrekæfingu hjá SSS og Glóa Kl.17:00-18:00 í íþróttasal við Norðurgötu. Foreldrar hvattir til að mæta með börnunum sínum.
Þriðjudagur 30. september
- Rótaryklúbbur Ólafsfjarðar býður í rólega hjólaferð með leiðsögn og skemmtilegum sögum. Lagt af stað frá Íþróttamiðstöðinni í Ólafsfirði kl:17:00
- Opinn líkamsræktartími hjá Ásdísi Sigurðar í íþróttasal við Norðurgötu kl.18:45
- Opinn byrjendatími hjá Ásdísi Sigurðar í Zumba í íþróttasal við Norðurgötu kl.19:45
- Opnir tímar hjá Tennis og badmintonfélagi Siglufjarðar frá kl.16:00-19:00
Börn og foreldrar velkomnir.
Miðvikudagur 1. október
- Opnir tímar í fimleikum hjá Lísu og Hafþóri í Íþróttamiðstöðinni í Ólafsfirði.
- Fyrir 4 – 6 ára börn kl.16:00-17:00
- Fyrir 7 – 12 ára börn kl.17:00-18:00
- Fyrir 13 ára og eldri kl.18:00-19:00
- Hyrnan og Súlur bjóða í opinn tíma í blaki í Íþróttamiðstöðinni á Siglufirði frá kl.18:00-19:30
Fimmtudagur 2. október
- Opinn leikfimitími hjá Hörpu í Íþróttamiðstöðinni í Ólafsfirði kl:17:00
- Rótaryklúbbur Ólafsfjarðar býður í rólega hjólaferð með leiðsögn og skemmtilegum sögum. Lagt verður af stað frá Íþróttamiðstöðinni í Ólafsfirði kl:17:00
- Opnir tímar hjá Tennis og badmintonfélagi Siglufjarðar frá kl. 16:00-19:00
Föstudagur 3. október
• Opinn tími í Zumba hjá Ingunni í Bláahúsinu á Siglufirði kl.16:30. Allir velkomnir.
Annað í Hreyfivikunni
- Frítt í líkamsræktarstöðvar íþróttamiðstöðvanna í Fjallabyggð alla vikuna.
- Allar æfingar opnar hjá Knattspyrnufélagi Fjallbyggðar, sjá æfingatöflu á heimasíðu KF.
- Skíðafélag Ólafsfjarðar býður öllum að vera með á haustæfingum félagsins í vikunni.
Tími og staðsetning auglýst á facebook síðu félagsins.
- Mánudaginn 29.september og helgina 4. - 5.október er frítt í sund í Fjallbyggð.
Eitthvað fyrir alla í Hreyfivikunni – MOVE WEEK
Athugasemdir