Dúdda er 90 ára í dag

Dúdda er 90 ára í dag Margir eldri Siglfirðingar muna eftir Dúddu. Dúdda, sem raunar heitir Þórunn Guðmundsdóttir, fæddist í Önundarfirði 7. maí 1920.

Fréttir

Dúdda er 90 ára í dag

Dúdda
Dúdda
Margir eldri Siglfirðingar muna eftir Dúddu. Dúdda, sem raunar heitir Þórunn Guðmundsdóttir, fæddist í Önundarfirði 7. maí 1920. Dúdda flutti til Siglufjarðar árið 1944 og bjó á Siglufirði þangað til hún fluttist til Húsavíkur árið 2004, en þar býr hún nú á dvalarheimilinu Hvammi. Dúdda giftist Einar M Albertssyni og eignuðust þau tvö börn, Albert Guðmund og Sigríði Þórdísi. Dúdda og Einar hófu búskap, fyrst í síldarbrakka og svo á Hlíðarvegi 44, en fluttu svo árið 1948 í nýbyggðan verkamannabústaðinn á Hvanneyrarbraut 62. Lengst af bjuggu þau á Hólavegi 15. Dúdda var verkakona og vann við ýmis störf, svo sem í mötuneyti, við síldarsöltun, ræstingar í Barnaskólanum, en lengst vann hún í þvottahúsi Sjúkrahúss Siglufjarðar. Dúdda var virk í félagsmálum á Siglufirði, bæði verkalýðsmálum og öðrum félagsmálum. Fegrun umhverfisins með blóma- og skógrækt var þeim hjónum mikið áhugamál. Ennþá er Dúdda að. Það dettur varla úr sá dagur að hún vinni ekki við hannyrðir og hún fylgist vel með bátum Norðursiglingar fara og koma með ferðafólk í hvalaskoðun.

Dúdda og Einar Alberts (yngri)



Athugasemdir

05.desember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst