Efnalaugin Lind
sksiglo.is | Almennt | 28.02.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 753 | Athugasemdir ( )
Ég kom við hjá stúlkunum í Efnalauginni Lind fyrir stuttu
síðan. Þær voru alveg eldhressar stúlkurnar og ánægðar að sjá mig.
Þegar ég kom þar við voru allar vélar á fullu og nóg að
gera við að þvo alls konar þvott. Ég fékk að litast aðeins um og taka nokkrar myndir af þeim og að sjálfsögðu
þvottavélunum líka.
Við byrjuðum að taka mynd af þeim frammi við afgreiðsluborðið og svo
fór ég að skoða vörurnar og vöruúrvalið sem þær eru með og það er alls ekkert lítið. Þær sögðu
mér að koma bara inn fyrir á eftir þegar ég væri búin að mynda vörurnar sem þær eru með. Þegar ég fer svo á
bak við sé ég ekki nokkurn mann (konu) og fer að svipast um hvort ég sjái þær ekki einhvernstaðar á milli tækjanna sem eru
þarna. Það sem ég sá svo þegar ég færði mig aðeins innar í efnalaugina var kona hálf inn í þvottavél.
Ég get ekki neitað því að það var ögn sérstök sjón og ég velti því fyrir mér hvort hún væri
að leyta að hinum stúlkunum eins og ég. En græjurnar þarna eru engar smávélar og meira að segja ég færi létt með að
týnast í svona þvottavél.
En stúlkurnar sjá um að þvo allt á milli himins og jarðar, hvort sem
það eru rúmföt, föt og alls konar. Einnig þurrhreinsa stúlkurnar jakkaföt og spariföt.
Núna þarf ég til dæmis ekki að hafa nokkrar áhyggjur af
því ef Ólöf sinnir ekki sínu hlutverki nógu vel í þvottahúsinu sínu. Þá trítla ég bara með
óhreint beint yfir götuna og fæ þetta allt saman hreint, fínt og pressað.
Það er líka tilvalið fyrir fólk sem er hér í fríi að
nýta sér svona þjónustu. Ég hef líka heyrt af því að sjómenn sem hafa kannski stutta viðkomu á Sigló hafi
nýtt sér þetta vel og eru hæst ánægðir með þjónustuna.
Það var virkilega gaman að kíkja í heimsókn til þeirra í
Efnalauginni og sjá hvernig þetta virkar allt saman. Ég hef nefnilega ekki ennþá komið inn í þvottahúsið hennar Ólafar og vissi
þar af leiðandi akkúrat ekkert hvernig svona þvottahús virkar. Þannig að það er óþarfi að skoða þetta hjá henni
Ólöfu, ég er búin að sjá þetta allt saman í Efnalauginni.







Athugasemdir