Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins
Við Elli fórum á fund í Valhöll í gær þar sem starf Endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins var kynnt og ný heimasíða opnuð.
Endurreisnarnefndin starfar í fjórum hópum:
Endurreisnarnefndin hefur verið starfandi sl. þrjár vikur og hefur hún það hlutverk að móta tillögur og hugmyndir fyrir Sjálfstæðisflokkinn í því endurreisnarstarfi sem er framundan í okkar samfélagi. Mér lýst vel á Endurreisnarnefndina og ætlum við hjón að taka virkan þátt í starfinu fram að landsfundi í lok mánaðarins.
Það var ekki verra að hitta marga góða félaga í Valhöll og snérist var umræðan eftir fundinn eðlilega um prófkjör kjördæmanna sem eru framundan.
Á endurreisnarvefnum getur fólk komið með athugasemdir og hugmyndir um það hvernig best er að standa að endurreisninni og er ekki krafist flokksskírteinis.
Athugasemdir