Enginn veit sína ævi.......
Þeir sem fylgst hafa með stjórnmálum síðustu ára hafa tekið eftir því að Kristján L Möller hefur notað hvert tækifæri til að gera lítið úr Birki Jóni Jónssyni. Á framboðsfundum sem og á þingi hefur KLM komið fram við Birki eins og hann sé óþroskaður óviti. KLM hefur talað þannig niður til Birkis að skömm er af. Það er því skrítin staða sem upp er komin. KLM situr nú í minnihlutastjórn sem á allt sitt undir stuðningi framsóknarmanna. KLM kemur málum sínum ekki áfram í þinginu nema Birkir Jón sem nú er orðinn varaformaður Framsóknarflokksins greiði þeim atkvæði. Það á hér ágætlega við að „Enginn veit sína ævi fyrr en öll er „
Athugasemdir