Er í hlutverki sjálfs Trölla
http://www.mbl.is/mm/folk/ | Okkar fólk | 16.11.2008 | 21:20 | | Lestrar 262 | Athugasemdir ( )
Farið er mjög lofsamlegum orðum um frammistöðu Stefáns Karls Stefánssonar leikara sem fer með aðalhlutverk í bandarískri söngleikjauppsetningu á „Þegar Trölli stal jólunum“. Frumsýning var í Hippodrome leikhúsinu í Boston á fimmudaginn var. Greint er frá sýningunni á heimasíðu The Baltimore Sun og þar má einnig sjá myndband úr sýningunni. Blaðið segir að í sýningunni hafi tekist afbragðsvel að endurskapa í sýningunni söguna og sjónvarpsþættina sem á henni byggja. Það eigi jafnt við um sviðsmyndina, búningana, brellur og ekki síst leik Stefáns Karls, en hann er í hlutverki Trölla.
Sjá hreyfimyndir
Athugasemdir