Evrópa - áreynsla nokkur næstu árin

Evrópa - áreynsla nokkur næstu árin Í mörgum löndum, einkum í Evrópu, hefur fjármálahrunið breytst í efnahags- og stjórnmálakreppu. Í Evrópu hafa

Fréttir

Evrópa - áreynsla nokkur næstu árin

Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson
Í mörgum löndum, einkum í Evrópu, hefur fjármálahrunið breytst í efnahags- og stjórnmálakreppu. Í Evrópu hafa vandræði Grikkja, Portúgala, Íra og Spánverja vakið mesta athygli. En fleiri þjóðir glíma við mikinn vanda, þeirra á meðal Bretar. Þessum vandræðum er engan veginn lokið, og ráðandi líkur að þau endist næstu árin án bata. Vafalaust mun því reyna mjög á Evrópusamstarfið á næstu misserum.
Þegar vandræði þessara þjóða eru athuguð sést hve sjálfhverfir við Íslendingar erum. Því fer nefnilega fjarri að hrun hafi aðeins orðið hérlendis. Meira að segja eru margir erlendis þeirrar skoðunar að stjórnvöld hér hafi brugðist harðar og betur við hruninu en stjórnvöld annarra þjóða. Geir H. Haarde nýtur meiri virðingar erlendis en hér heima - en hann á reyndar eftir að rétta hlut sinn hér líka. Skömmin hverfur af Landsdómi þegar Geir fær uppreist æru.

Býsna margir Íslendingar trúa því að vandamál Grikkja, Portúgala, Íra, Spánverja og fleiri eigi rætur að rekja til Evrópusambandsins og evrunnar sem sameiginlegs gjaldmiðils. Fátt er fjær sanni. Nær væri að álíta að ESB og evran hafi dregið úr vandamálunum, a.m.k. heldur en hitt. Vandamálin nú stafa af þeirri feiknarlegu skuldasöfnun á alþjóðavettvangi sem einkenndi árin fram að hruninu. Þessi almenna skuldasöfnun átti rætur í þeirri ,,rakalausu bjartsýni" (irrational exuberance) sem ríkti um allar jarðir. Í hruninu lækkuðu eignir alls staðar en skuldir ruku ennþá hærra upp. Afturkippur varð í efnahag þjóða og halli á ríkisrekstri versnaði.   

Þegar ríki gengur til fjölþjóðasamvinnu um gjaldmiðil fylgja því einatt erfiðar aðgerðir til til að treysta samkeppnisstöðu og þróunarstyrk atvinnuvega þjóðarinnar. Því miður héldu Grikkir árum saman í þveröfuga átt, bæði í atvinnulífi og ríkisbúskap. Auk þess réðust þeir alls ekki gegn alræmdum ósiðum í fjármálum. Vandi þeirra verður ekki rakinn til Evrópusamvinnu eða evru, en alþjóðlegir evrópskir bankar bera sinn hluta ábyrgðarinnar. Margir telja að ennþá meiri ótíðinda sé enn að vænta frá Grikklandi.

Vandi Portúgala er að sumu leyti af svipuðum toga. Þegar markaðir í Austur-Evrópu opnuðust hallaði mjög á þá og þeir brugðust ekki við sem skyldi. Í alþjóðlega fjármálahruninu urðu Portúgalar fljótt fyrir sams konar áföllum sem aðrir, en ríkissjóður og fjármálakerfi voru ekki viðbúin að taka á móti lánsfjárkeppu og vaxtahækkunum.

Efnahagskreppan á Írlandi er að nokkru leyti af öðrum toga. Þar hafði orðið ofurþensla í byggingastarfsemi, eignabóla og útrás í fjármálakerfinu. Þegar bankakerfi Íra riðaði til falls, greip ríkisstjórnin til þess vafasama ráðs að ábyrgjast alla bankana á einu bretti. Vandi Spánverja er að nokkru leyti sambærilegur, en þeir stríða einnig við landlægt fjöldaatvinnuleysi, hrun í byggingariðnaði og ríkishalla. Sérstaða Spánverja í þessu er að þeir eru í hópi stórþjóða Evrópu og efnahagsskellur á Spáni verður alvarlegt áfall fyrir alla álfuna.

Engin þessara þjóða kennir Evrópusambandinu eða evrunni um vandræði sín. Öllum er ljóst að þau eru heimatilbúin í hverju landi. Sumir kenna því reyndar um með öðru að ESB og evran séu alltof ,,losaraleg", alltof ,,frjálsleg" og það vanti alveg ,,innri aga og stjórn" á þetta. Sumir telja að nú gæti hentað að hafa eigin sérgjaldmiðil og ,,láta svo bara falla". Áratugareynsla Íslendinga er alveg skýlaus um að slíkt er skammvinnur vermir. Á eftir koma vandræðin með óðaverðbólgu, kjaraskerðingum og vinnudeilum, verðtryggingu og ofsavöxtum, jafnvægisleysi og endalausum reddingum - og nýjum og nýjum dýfum. 

Vonandi verða þessi sjálfskaparvíti ekki til þess að veikja stöðu aðildarríkja ESB eða minnka sjálfstætt svigrúm þeirra. En jafnvel þótt þessi vandræði verði ekki rakin til ESB eða evrunnar, fer ekki hjá því að efasemdir vakni. Og lýðskrumarar notfæra sér þetta með þjóðernisöfgum til fylgisaukningar. Allt þetta er orðið greinilegt í Evrópu um þessar mundir. Og ekki vantar bergmálið hér heima.

Það tók Bandaríkjamenn eina og hálfa öld að koma skipulagi á gjaldmiðil og fjármálakerfi sitt. Þjóðir ESB hafa lagt rúman áratug að baki og sameiginlegt gjaldmiðils- og fjármálakerfi er í fæðingu, viðkvæmt og brothætt. Að nokkrum hluta ýttu bandarísk fjármálaáhrif hruninu í Evrópu af stað. Sjálfsagt er sú gagnrýni á kerfi ESB réttmæt að menn hafi reynt að komast upp með hálfkveðnar vísur, að ekkert aðhald sé gegn athöfnum eða aðgerðaleysi einstakra aðildarríkja og allir ætlist til þess að ,,stóri bróðir" í Þýskalandi borgi brúsann.

Nú er framundan að móta fjármála- og bankakerfi Evrópu upp á nýtt. Auk þess verður að endurskoða margt í evrusamstarfinu. Skuldavandann verður að leysa en það tekur meira en nokkra mánuði. Þýskir og franskir bankar munu áreiðanlega verða að taka á sig eitthvað af þeim byrðum sem hingað til hafa lent á almenningi í þeim þjóðríkjum sem verst standa. Evrópumenn verða að leggja alla áherslu á sveigjanleika, verðmætasköpun og samkeppnishæfni en hverfa frá afturhaldi, báknsóun og kerfistregðu. Allt þetta verður mikil áreynsla fyrir ESB og evruna. Um hríð verður þetta vatn á myllu lýðskrumara og ofstækismanna. Flest bendir til þess að þetta ástand vari nokkur næstu árin meðan menn leita að málamiðlunum. Fátt bendir til bata á næstunni.

 

Athugasemdir

11.desember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst