Færeyskir textar
sksiglo.is | Okkar fólk | 25.11.2008 | 00:02 | | Lestrar 317 | Athugasemdir ( )
Það hfa löngum verið góð tengsl við vini okkar Færeyinga í gegn um árin, allt frá því að þeir stunduðu hvert
vor og sumar, handfæraveiðar út af norðurlandi og komu gjarnan um hverja helgi inn á Siglufjarðarhöfn til afslöppunar.
Margir af núverandi eldri kynslóð muna eftir "beinakexinu" sem þeir sóttu fast í á vorin þegar fyrstu Færeysku skúturnar (kútterar) komu til hafnar, kex sem sjómennirnir Færeysku jafnan biðu eftir að deila til krakkanna.
Í hugum margra var koma Færeysku skútanna ekta vorboði.
Það voru oft fjörugar samræður á milli krakkanna og unglinga annarsvegar og Færeyinganna hins vegar. þokkalega gekk þeim að skilja hvort annað, en oft komu einstaka færeysk orðatiltæki flatt uppá hina íslensku krakkana.
Hér á myndinni til hliðar og fleirum hér neðar er raunar auðvelt að skilja við hvað þar er átt hverju sinni, en kemur þú örlitlu brosi á vör þegar "sama merking" er túlkuð yfir á Íslensku
Einn af lesendum vefsins sendi okkur þessar myndir

Athugasemdir