Fjölbreytt og skemmtilegt og nóg um að vera
Það er sérlega fjölbreytt og skemmtilegt að litast um á jólamarkaðnum í bláa húsinu á Rauðkutorgi um þessar mundir enda fjölmargir listamenn og föndrarar mættir á svæðið til að selja og sýna vörur sínar.
Mikið er um að vera í bænum núna og má þar nefna Jólabrunch á Torginu sem stendur til klukkan 15, Fjölskyldumessu í kirkjunni og síðan á að sjálfsögðu að kveikja á jólatrénu klukkan 16:00 og má þar reikna með að góðir rauðklæddir gestir verði á ferðinni. Markaðurinn stendur síðan yfir til klukkan 17.
Glæsilegir munir
Falleg kerti til styrktar Neyðarsjóð Krafts
Litskrúðugt og skemmtilegt
Glæsilegar seríur
Athugasemdir