Flott hús á Sigló
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 15.06.2009 | 00:01 | | Lestrar 825 | Athugasemdir ( )
Siglfirðingar og aðrir sem farið hafa um miðbæ Siglufjarðar
hafa undanfarið séð hús við Aðalgötuna umgirt vinnupöllum. Þar hefur eigandinn
að mestu sjálfur verið að bauka myrkranna á milli, stundum einn og stundum
ásamt aðstoðarmanni og mönnum. Greinilegt var að hann var vinna við að gera húsið sitt vistlegra en
það hefur verið síðustu áratugi.
Nú er komið í ljós að honum hefur tekist ætlunarverk sitt með glæsibrag.
Í gær var megnið af vinnupöllunum farið og í ljós var komið eitt af fegurstu húsum Siglufjarðar.
Glæsilegt, til hamingju með andlitsupplyftinguna.

Athugasemdir