Fróðleiksmoli - Drífholt

Fróðleiksmoli - Drífholt Drífholtið er gamalt verkfæri og notað við tunnusmíði og ennfremur alla vinnu við trétunnur. Drífholtið hefur vart verið

Fréttir

Fróðleiksmoli - Drífholt

Þrjár gerðir drífholta
Þrjár gerðir drífholta
Drífholtið er gamalt verkfæri og notað við tunnusmíði og ennfremur alla vinnu við trétunnur. Drífholtið hefur vart verið notað nema með díxli - og þannig hefur það verið um aldir. Neðsta hluta drífholtsins er haldið að tunnugjörðinni (ofan á gjarðarröðinni) og barið á með díxlinum. Þannig eru gjarðirnar reknar þétt að stöfum tunnunnar eftir að botninn er settur í hana - tunnunni lokað um leið og gjarðirnar eru reknar niður þá þéttist tunnan svo ekki leki. Talað var um að drífa síldartunnu og að herða gjörð að stöfum.Meginhluti dífholts er gerður úr tré – fyrir svigabentar tunnur er hann breiður og íhvolfur að neðan en mjókkar upp í skaft sem díxilmaðurinn heldur um. Á enda skaftsins er járnhringur til styrktar á móti díxilhögginu.
Þegar járngjarðir komu til sögunnar var lítið járnstykki fest á íhvolfan neðanverðan hluta áhaldsins; járn skal á móti járni. Enn síðar var settur þar nokkurs konar járnrammi sem gerir það að verkum að í raun er sama á hvorn veginn áhaldinu er haldið að gjörðinni.

Stundum hefur verið litið á drífholtið og díxilinn sem tákn um vinnu karlmanna á hverri síldarsöltunarstöð. Mikill fjöldi þessara verkfæra er varðveittur á Síldarminjasafni Íslands. 

Á myndinni eru þessar þrjár drífholtsgerðir sem lýst er hér að farman og er sú elsta til hægri. Í drífholtið í miðju er skorinn stafurinn T en áhaldið átti Tryggvi Flóvenz sem starfaði sem díxilmaður á söltunarstöð Skafta Stefánssonar, Nöf.

Orðið drífholt er tökuorð í íslensku rétt eins og díxilnafnið:
hollenska: drevel
þýska: treibholz ???
finnska: driivari
norska: drivholt
íslenska: drífholt

Heimildir: Gestir safnsins hafa lagt erlendu orðin í té. Að öðru leyti reynsla skrásetjara.

ök - Síldarminjasafn Íslands


Athugasemdir

19.apríl 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst