Fuglalíf og vegaframkvæmdir.

Fuglalíf og vegaframkvæmdir. Lítið hefur farið fyrir fuglaskoðun sumra áhugamanna á Siglufirði í sumar, það er þar sem lífið er blómlegast öllu jöfnu á

Fréttir

Fuglalíf og vegaframkvæmdir.

Lítið hefur farið fyrir fuglaskoðun sumra áhugamanna á Siglufirði í sumar, það er þar sem lífið er blómlegast öllu jöfnu á þessum árstíma sitthvoru megin við Langeyrartjörn og handan fjarðarins.

Orsökin er einföld, vegagerð og undirbúningur fyrir malbikun Langeyrarvegar hefur staðið yfir meirihluta sumarsins og umferð þar um eðlilega ekki heimiluð, en það breytist væntanlega eftir næstkomandi helgi þegar malbikun sem þá hefst verður lokið.

Á meðan hafa þeir sem nauðsynlega hafa þurft fram á fjörð, orðið að fara gamla Fjarðarveginn sem ekki hefur verið mjög fýsilegur yfirferðar í sumar, og því færri farið þá leið en venjulega. 

Álftirnar tvær sem komu upp ungum í sumar hafa forðast vélagnýinn og verið lítið áberandi.
Í gærdag sást þó til þeirra þar sem þær voru ásamt ungum sínum 5 (voru sex) greinilega í góðu æti austur af norðurenda gömlu flugbrautarinnar.


Athugasemdir

28.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst