Fuglaskoðunarferð í Héðinsfirði
sksiglo.is | Viðburðir | 28.05.2014 | 18:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 300 | Athugasemdir ( )
Fuglaskoðunarferð í Héðinsfirði. Einn skór.
28. maí, kl. 18 frá útsýnisskífunni í Héðinsfirði. Verð: 1.000. 3-4
klst.
Gengið með vatninu að vestan og niður að sjó. Áhugaverð leið í einstökum eyðifirði. Fjölbreytt fuglalíf.
Ferðafélag Siglufjarðar stendur fyrir skipulögðum gönguferðum í sumar. Fyrsta ferðin verður miðvikudaginn 28. maí en þá
verður boðið upp á fuglaskoðunarferð í Héðinsfirði.
Síðan verður sólstöðuganga 20. júní. Gengið á Hvanneyrarhyrnu 5. júlí. Út á Siglunes 19. júlí.
Listaganga um Siglufjörð verður 30. júlí og síðan gengið á Hólshyrnuna 2. ágúst. Gönguferðir sumarsins enda svo um
suðureggjar Siglufjarðarfjalla þann 9. ágúst.
Athugasemdir