Fyrirtækjaþing í undirbúning
Frumvinna er nú í gangi hjá bæjarfélaginu varðandi skipulagningu fyrirtækjaþings í Fjallabyggð. Væri markmið þingsins að standa að opinni umræðu um atvinnumál og atvinnuuppbyggingu í Fjallabyggð .
Nefndi stefnir að auki á að heimsækja fyrirtæki á svæðinu í þeim tilgangi að efla tengsl milli sveitarfélagsins og atvinnurekenda en starfsmanni nefndarinnar hefur nú verið falið að taka saman lista yfir þau fyrirtæki og atvinnurekendur sem stefnt er á að heimsækja á árinu 2015.
Í bókum bæjarráðs kemur fram að "Atvinnumálanefnd lagði til á fundi sínum 21. janúar 2015 að haldið yrði fyrirtækjaþing í Fjallabyggð þar sem fyrirtæki og sveitarfélagið standi sameiginlega að opinni umræðu um atvinnumál og hverskyns hluti sem tengjast atvinnuuppbyggingu á svæðinu.
Lagt var til við bæjarráð að settur yrði á laggirnar fimm manna vinnuhópur skipaður fulltrúum sveitarfélagsins og atvinnulífsins
sem gerði tillögu að framsetningu þingsins og hugsanlegu samstarfi við fyrirtæki og/eða stofnanir utan sveitarfélagsins.
Stefnt bæri að því að þingið yrði haldið eigi síðar en í lok apríl 2015.
Eftir umfjöllun samþykkir bæjarráð að óska eftir nánari útfærslu á fyrirtækjaþinginu þ.e. framkvæmd,
markmið og áætlaðan kostnað".
Athugasemdir