Galleri Sigló hættir starfsemi sinni fljótlega! Opið út ágústmánuð

Galleri Sigló hættir starfsemi sinni fljótlega! Opið út ágústmánuð Þær eru búnar að vera þarna við torgið í 12 ár, fjórar vinkonur þær Lóa, Sigga, Ásdís

Fréttir

Galleri Sigló hættir starfsemi sinni fljótlega! Opið út ágústmánuð

Þær eru búnar að vera þarna við torgið í 12 ár, fjórar vinkonur þær Lóa, Sigga, Ásdís og Sissa.

Þetta byrjaði nú reyndar fyrr, í Kommunni í Kaupfélagshúsinu sagði Ásdís. Þar var tómstunda og föndur starfsemi fyrir eldri borgara sem bæjarfélagið rak þar um tíma, en þegar það var lagt niður slógum við okkur saman nokkrar, keyptum keramik brennsluofn og leigðum okkur þetta húsnæði hér við Torgið.

Hér hittast þær alla virka daga milli kl 13 og 17 og mála, merkja keramik af öllum stærðum og gerðum eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan.
Hingað kemur fullt af fólki alla daga, sumir bara að skoða, aðrir kaupa og panta eitthvað sérmálað, sumir koma og fá kaffi og spjalla smá stund, enda eru þær mjög skemmtilegar þessar eðaldömur og með skoðanir á flestu sem gerist hér í bænum og út í hinum stóra heimi. Lóa er nú líka þekkt fyrir að vera ekkert að tala í kringum hlutina, segir bara eins og þetta er, beit frá hjartanu.

Sigga ætlar að hætta núna 1 júlí en við hinar ætlum að vinna áfram út ágúst, segja þær samróma. Vonandi getum við selt eins mikið og hægt er af öllu "dóti" sem er hér upp um alla veggi, ekki létt að pakka þessu niður og koma í geymslu.

Já þetta verður erfitt fyrir okkur öll, eitthvað sem vantar þarna við Torgið.

galleriHér eru vinkonurnar fjórar að vinna og ræða málin. Frá vinstri. Sissa, Ásdís, Lóa og Sigga.

GalleriGamlar minningar frá Kommunni og Gallerí Sigló

galleriÁsdís að mála listaverk á vasa.

galleri

galleriAlltaf jól í Gallerí Sigló

galleri

galleriHægt er að panta könnur með gömlum félagsmerkjum, t.d gamla KS merkið og fleira


Athugasemdir

25.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst