Gangan upp SR-strompinn

Gangan upp SR-strompinn Ég er búin að horfa mjög oft á SR-strompinn á Sigló og langað að klifra þarna upp til að taka myndir. Eitt kvöld í sumar þegar

Fréttir

Gangan upp SR-strompinn

Ég er búin að horfa mjög oft á SR-strompinn á Sigló og langað að klifra þarna upp til að taka myndir.

 
Eitt kvöld í sumar þegar hún Ólöf mín var ekki í bænum lét ég svo verða af því og sótti ég um leyfi hjá þeim sem eru með umsjá yfir strompnum. Ég fékk leyfið og þá þurfti ég að láta lögreglu vita af ferðum mínum því að sjálfsögðu eru allar mannferðir þarna upp án leyfis algjörlega bannaðar. Þeir hjá Björgunarsveitinni Strákum lánuðu mér belti og öryggislínu og vissu þar af leiðandi líka af ferðum mínum þarna upp.
 
Þegar upp var komið var útsýnið alveg hreint stórkostlegt. Ég sat örugglega í hálftíma og virti fyrir mér útsýnið. Veðrið var heldur ekki af verri sortinni, logn og í kaldari kantinum það kvöldið.
 
Ég fann lítið ef hreinlega bara nokkuð fyrir lofthræðslu fyrr en ég kom alveg upp á strompinn. Og hræðslan fólst helst í því að detta inn í strompinn frekar en út af honum. Þarna uppi eru járnstangir sem gerir það ögn erfitt að athafna sig.
 
Það er bezt að ég taki það fram þó það sjáist í myndbandinu að Land-Rover leikur lykilhlutverk í myndbandinu.
 
En allavega tók ég örstutt myndband þegar ég fór þarna upp sem kemur hér fyrir neðan og þar fyrir neðan slóð á myndirnar sem ég tók þarna uppi.
 

 

Bein slóð á myndbandið hér.

Slóð á myndir sem teknar voru þarna uppi í sumar.


Athugasemdir

30.desember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst