Genis hf setur upp lyfjaverksmiðju á Siglufirði.
sksiglo.is | Frétta yfirflokkur | 10.03.2012 | 01:10 | Robert | Lestrar 1998 | Athugasemdir ( )
Lyfjaþróunar fyrirtækið Genis hf kynnti á fundi í Kaffi Rauðku í gær áform sín um að setja upp verksmiðju á Siglufirði til framleiðslu á afurðum sínum.
Núverandi eigendur Hólshyrna ehf og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins keyptu fyrir sjö árum ransóknar og þróunardeild fyrirtækisins Primex ehf.
Rannsóknarsetur Genis hf er í Reykjavík. Þar starfa þrír vísindamenn við rannsóknir á fásykrungum unnum úr rækjuskel. Allar stærri rannsóknir félagsins eru úthýstar til rannsóknarfyrirtækja um allan heim.
Tveir vöruflokkar hafa verið þróaðir hjá Genis hf. Lyf til inntöku sem að vinnur á sjúkdómum sem að eiga uppruna sinn í bólgum í líkamanum.
Seinni vöruflokkurinn er beinfyllingarefni sem að örvar vöxt beinfruma.
Framtíðar starfsemi félagsins mun verða í því húsnæði við smábátahöfnina þar sem að bátasmiðjan Siglufjarðar Seigur er nú til húsa.
Miklar breytingar verða gerðar á útliti hússins til að aðlaga það að byggingum í nágrenninu.
Starfsemi félagsins mun fara hægt af stað en áætlað er að framleiðsla byrji fyrrihluta næsta árs, Reiknað er með að um tíu starfsmenn vinni við verksmiðjuna til að byrja með.
Á aðalfundi félagins í gær var ákveðið að auka hlutafé félagsins um fimm hundruð milljónir króna til að fjármagna uppbyggingu á framleiðslueiningunni og til frekari rannsókna.

Athugasemdir