20 punda lax úr Fljótaá

20 punda lax úr Fljótaá Fljótaáin er heldur betur að lifna við núna og menn eru byrjaðir að ná stórlaxinum á fluguna. Flóð hömluðu veiði í sumarbyrjun í

Fréttir

20 punda lax úr Fljótaá

20 pundari veiddur undir klöpp. Raud frances 1/2
20 pundari veiddur undir klöpp. Raud frances 1/2
Fljótaáin er heldur betur að lifna við núna og menn eru byrjaðir að ná stórlaxinum á fluguna.
 
Flóð hömluðu veiði í sumarbyrjun í Fljótaá eins og mörgum öðrum ám norðanlands.
 
Um miðjan júlí var veiðin kominn í gang og hafa veiðst nærri 60 laxar og margir stórir virðast vera á sveimi og hafa slitið taumana hjá veiðimönnunum.  Þá fór bleikjuveiðin hressilega í gang og hafa veiðst um 400 bleikjur.
Tuttugu pundarinn nú er sá stærsti sem náðst hefur í sumar og tók Rauða Frances flugu. Öllum laxi er slappt aftur í ána.
 
Í síðustu viku veiddi síðan sjö ára snáði um sjö punda urriða í Stífluvatninu á litla flugu.

Áin er nær uppseld í sumar og aðeins tvær stangir eftir 15 – 17 ágúst. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um stangirnar tvær 15-17. ágúst á orri@icy.is

Á myndinni heldur Chad Pike á 20 punda laxinum. Laxinn var veiddur undir Klöpp á  rauðan frances 1/2" túbu. Leiðsögumaður var Jón Heimir Sigurbjörnsson

Athugasemdir

25.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst