ABC-Skólahjálp í MTR

ABC-Skólahjálp í MTR Á vef Menntaskólans á Tröllaskaga kemur ţađ fram ađ nemendur í ABC-skólahjálp afhentu ţann 14. maí afrakstur starfs síns á önninni

Fréttir

ABC-Skólahjálp í MTR

Á vef Menntaskólans á Tröllaskaga kemur það fram að nemendur í ABC-skólahjálp afhentu þann 14. maí  afrakstur starfs síns á önninni við söfnun fyrir börn í Kitetika grunnskólanum í Úganda.
 
Aðalbjörg Kristjánsdóttir, móðir Guðbjargar Hákonardóttur, starfsmanns ABC í Úganda veitti því sem safnaðist viðtöku fyrir hönd samtakanna.
 
Guðbjörg heimsótti skólann í janúar og hafði eldmóður hennar mikil áhrif á nemendur. Um fjögur þúsund börn eru í ABC skólum í Úganda.
 
Söfnunin gaf meðal annars af sér 20 borðtölvur með skjám og lyklaborðum. Gefandi er Íslandsbanki. Tölvurnar fara á nytjamarkað ABC í Reykjavík en andvirðið rennur til Kitetika grunnskólans. KF, Knattspyrnufélag Fjallabyggðar gaf 21 íþróttbúning og afhenti Óskar Þórðarson, íþróttakennari þá fyrir hönd félagsins. Búningarnir verða sendir til Úganda, fyrsta spölinn með Flytjanda sem er meðal styrktaraðila söfnunarinnar. Þá söfnuðu nemendur fimmtíu og fimm þúsund krónum með veitingasölu og samskotum.
 
Nemendurnir segjast hafa lært um kærleikann og hvað það sé gott að geta hjálpað öðrum. Þau hafi líka lært um ástandið hjá börnum í Úganda. Niðurstaðan sé að íslensk ungmenni eigi að vera glöð með sitt góða líf og það sem þau hafa. Kennari í áfanganum var Brynjar Kristjánsson. 
 
Sjá nánari umfjöllun og myndir á vef MTR hér.
 
Mynd við frétt fengin af vef MTR.

Athugasemdir

26.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst