Blakliðin frá Sigló kepptu á Akureyri
sksiglo.is | Almennt | 12.04.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 441 | Athugasemdir ( )
Um síðustu helgi var Skautamótið í blaki haldið á Akureyri.
Að sjálfsögðu voru blaklið frá Siglufirði að keppa en það voru Hyrnan A , Súlur 1 og 2 og Skriður eldri og yngri og
stóðu liðin sig ágætlega.
Úrslit fóru þannig að lið Hyrnunnar A var í öðru sæti í sínum flokk og Súlur 1 í 10 sæti í fyrstu
deild. Súlur 2 voru í þriðja sæti í annarri deild. Skriður yngri lentu í þriðja sæti og Skriður eldri lentu í sjöunda
sæti í 4 deild. Ekkert lið frá Siglufirði spilaði í 3. deild.
Svo að sjálfsögðu náði ég nokkrum myndum að þessum eðal-blökurum. Reyndar náði ég bara myndum af Hyrnu mönnum og
Skriðum eldri vegna þess að ég var að passa fyrir hana Ólöfu og það var eiginlega vonlaust að hafa eina eins árs gamla og eina fimm
ára prílandi í stigum, grindverkinu eða eiginlega bara öllu sem hönd á festi þarna þannig að ég fór með þær
að kaupa hamborgara og ís.
Hér eru Skriður eldri að gera sig klárar fyrir keppni.
Hér er Edda Henný að hita upp.
Skriður eldri í svörtum og gulum búningum.
Klappliðið.
Danni með banana og Steinar fylgist alveg snarspenntur með.
Siggi að sýna taktana.
Og Gulli Stebbi að sýna færnina.
Danni Pétur að smassa.
Anna Hermína.
Bryndís pósaði.
Helgi hélt með Gulla Stebba.
Dagný Finns og Hanna Sigga fylgdust spenntar með Hyrnu mönnum vinna hvern leikinn
á fætur öðrum.
Óskar að smassa.
Athugasemdir