Friggi fyllir á tankana
sksiglo.is | Almennt | 24.02.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 954 | Athugasemdir ( )
Þegar ég var að rúnta um eyrina á Siglufirði fyrir stuttu og var að leita að fréttum sá ég mér bæði til furðu og nokkurar skelfingar mann sem ég kannast vel við. Skelfingin orsakaðist út frá því að ég hef aldrei áður séð þennan rólyndis mann hlaupa áður.
Ég keyrði á eftir honum í þónokkra stund og dáðist að
hlaupastílnum, sem var nokkurs konar sambland af hlaupastíl antilópu og hlébarða, semsagt glæsilegur hlaupastíll og hann fór hratt yfir. Eitt
augnablik datt mér í hug að bjóða honum Frigga Guggu far, þar sem ég sat dáleiddur í bílnum og dáðist að honum á
hlaupunum, en svo sá ég hvers vegna hann væri að hlaupa.
Á bryggjunni beið Arnar á olíubílnum og það átti að
fara að dæla olíu á Múlabergið.
Friggi hljóp auðvitað beint um borð og Arnar, olían og bíllinn biðu
á bryggjunni eftir að löndunargengið væri búið að setja körin í Múlabergið. Svo beið Friggi bara sallarólegur eftir
því að bíllinn kæmist að til að dæla olíunni á skipið.
Ég forvitnaðist um það hjá Frigga hvað væri verið að taka
mikið og ef ég man rétt þá voru þetta líklega cirka 27.000 lítrar. Að sjálfsögðu spurði ég hvort hann væri ekki
örugglega með dælulykil eða eitthvað álíka til að nýta afsláttinn hjá olíufélögunum, en svo er víst ekki. Sem
betur fer þarf Friggi ekki að borga þetta sjálfur. Ég fór nú að hugsa út í það hvað svona myndi kosta ef maður
tæki 27.000 lítra af bensíni og líklega væru það alveg 6 milljónir 469 þúsund og 200 krónur ef maður miðar við
bensín-gengið þann 18. febrúar 2014 hjá ágætis olíufjélagi á höfuðborgarsvæðinu. Og ef maður er með 2
króna afslátt á dælulykli þá fengi maður alveg 54.000 krónur í afslátt sem telst nú kannski alls ekkert svo ljómandi
gott miðað við magnið sem maður er að kaupa.
En aftur að Frigga og áfyllingunni á skipið. Þegar búið var að
setja stútinn á var farið niður í vélarrúm skipsins og Friggi fylgdist með þegar tankarnir fylltust af olíu og allt klárt fyrir
brottför. Það var sérstaklega gaman að fá að fylgjast með Frigga gera klárt og svo að sjálfsögðu að spjalla við hann, en
eins og ég hef reyndar áður sagt á þessari síðu er Friggi með skemmtilegri mönnum.
Svo eru hér bæði myndir og svo örstutt myndband af Frigga hlaupa í átt
að skipinu.
Við byrjum á myndbandinu og svo förum við í myndirnar.
Hér er svo slóðin beint á myndbandið fyrir þá sem eru með
iPad eða önnur verkfæri sem ekki sjá myndbandið beint á síðunni. http://www.youtube.com/watch?v=v99nCjl1Llk&feature=youtu.be













Athugasemdir