Gamli Gjafar VE-600

Gamli Gjafar VE-600 Eins og margir gamlir sjóarar hafa sjálfsagt tekið eftir þá er gamli Gjafar VE-600 reglulegur gestur á Sigló. Gjafar var tíður gestur

Fréttir

Gamli Gjafar VE-600

Eins og margir gamlir sjóarar hafa sjálfsagt tekið eftir þá er gamli Gjafar VE-600 reglulegur gestur á Sigló.
 
Gjafar var tíður gestur á Siglufirði á árum áður og hefur hann tekið miklum breytingum síðan hann kom hér fyrst.
 
Valgeir Sigurðsson hringdi í mig og benti mér á þetta. Valgeir man vel eftir því að hafa verið að hlaupa með vörur um borð í skipið þegar hann var ungur drengur og þótti gaman að sjá hann sigla hér inn.
 
Ég kíkkaði um borð og spjallaði örstutt við skipstjórann sem heitir Gissur Baldursson og yfirvélstjórann Inga Arnar Pálsson sem voru hinir hressustu og lofuðu mér að taka nokkrar myndir um borð í skipinu.
 
Í dag heitir skipið Magnús Geir KE-5 og var smíðað í Austur Þýskalandi árið 1967.
 
gjafarVE-600 sést óljóst fyrir neðan KE-5
 
gjafarOg gamla nafnið.
 
gjafarGissur Baldursson.
 
gjafarIngi Arnar Pálsson.
 
gjafarOg svona leit hann út í upphafi.
 
 

Athugasemdir

25.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst