Gleðilegt sumar!!!

Gleðilegt sumar!!! Þá er sumardagurinn fyrsti runninn upp og vafalaust fagna margir því að vetur konungur er horfinn á braut. Samkvæmt Wikipedia er

Fréttir

Gleðilegt sumar!!!

Þá er sumardagurinn fyrsti runninn upp og vafalaust fagna margir því að vetur konungur er horfinn á braut.

Samkvæmt Wikipedia er sumardagurinn fyrst einnig kallaður Yngismeyjardagur og er hann sá fyrsti í Hörpu, sem er fyrstur af sex sumarmánuðum í gamla norræna tímatalinu.

Íslensk þjóðtrú segir að ef sumar og vetur frjósi saman boði það gott sumar þannig að núna í nótt sitja líklega margir límdir fyrir framan hitamælinn og fylgjast alveg snarspenntir með því hvort það frjósi nú ekki alveg örugglega. Líklega er þetta einn af fáum dögum eða nóttum réttara sagt sem menn hreinlega óska þess að frjósi.

Hægt er að lesa sig betur til með allavega þjóðtrú í sambandi við sumardaginn fyrsta á Wikipedia sem þú getur nálgast hér.
Siglo.is óskar Siglfirðingum og landsmönnum öllum gleðilegs sumars.

Athugasemdir

26.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst