Góður skíðadagur í Skarðsdal
sksiglo.is | Almennt | 21.01.2015 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 369 | Athugasemdir ( )
Sunnundaginn 18. janúar var mikið um að vera á skíðasvæðinu
í Skarðsdal.
Egill og fjélagar voru búnir að útbúa leikjabraut, bobb-braut,
hólabraut, leikvöll og þotu og sleðabaut á svæðinu. Margt var um manninn og veðrið skemmdi ekki fyrir en það var logn, kalt og ljómandi
gott færi.
Ég skutlaði henni Ólöfu minni upp í Skarð og lofaði henni að
renna sér nokkrar ferðir með eldri dóttur okkar. Ég beið hins vegar með yngri dóttur okkar í og við veitinga- og lyftuskúrinn hjá
Agli þar sem við spjölluðum örstutt við þá sem voru að fara í lyftuna og skelltum okkur svo inn í kakó, Kit-Kat og samloku. Nú
þar sem Egill bauð öllum upp á kakó og Kit-Kat í tilefni "World-snow-day" sem var einmitt þennan ágæta sunnudag fannst okkur yngri dóttur
okkar Ólafar minnar alveg tilvalið að fá okkur bara 2 samlokur fyrst kakóið og desertinn var frír.
Eftir þessar dásemdar kakó-Kit-Kat uppákomu og samlokurnar 2
kíkkuðum við aftur út og smelltum nokkrum myndum af björgunarsveitamönnum í Fjallabyggð á snjóflóðaæfingu.
Semsagt dásamlegur dagur í Skarðinu og líklega líka hjá þeim
sem voru að renna sér á skíðum.
Hér koma svo nokkrar myndir sem við tókum í
kakó-Kit-Kat-skíðaferðinni.
Egill tekur vel á móti öllum sem koma í skarðið.
Hanna Sigga pósaði fyrir okkur.
Agnes var að sjálfsögðu mætt í fjallið.
Tinna Hjaltadóttir og Dagný bíða eftir því að Sandra Finns komi með rjúkandi kakó og Kit-kat.
Bergljót og Sverrir mætt á skíði með barnabarnið.
Óskar Þórðar.
Þröstur Ingólfs og Nonni Salla.
Mark Duffield. Eða Döffi eins og ég kalla hann nú yfirleitt.
Anna María.
Siggi Ben var á björgunarsveitaæfingu.
Ellen Daðey og Hrólfur fengu sér aðalega bara kakó. Og samlokur.... og Kit-Kat.
Steinar og Skúli.
Hannibal og Sigurjón voru á björgunarsveitaæfingu.
Sjöfn Ylfa og Sigurjón.
Ása Guðrún.
Baldur Jörgen með alpagreina- og sjóskíðamyndavélina á toppnum.
Tristan.
Emma Hrólfdís með kakó.
Ólöf og Ellen.
Steini Bjarna og sonur hans, Janus.
Kata Freys, Guðrún Sif og Ása Árna.
Aníta Sara með vin sin.
Þessa kappa hitti ég á Hóli þar sem þeir voru að vélsleðast. Sá grímuklæddi er Marteinn og sá
hettuklæddi er Viðar. Synir Rutar Viðars og Alla Arnars.
Athugasemdir