Handverkshátíđ 2014 lauk á sunnudag
Handverkshátíð 2014 lauk í gær. Stjórnendur hátíðarinnar eru ánægðir með aðsóknina en gert er ráð fyrir að hátíðin hafi fengið um 15.000 heimsóknir.
Eftirtektarvert var hversu vandaðar vörur voru á boðstólnum í ár og hversu mikinn metnað sýnendur höfðu lagt í sýningarbása sína. Handverksmarkaður fór fram á föstudeginum og sunnudeginum með 20 þátttakendum hvorn daginn og vakti hann svo mikla lukku að búast má við að hann verði árlegur viðburður.
Laugardeginum lauk með frábærri kvöldskemmtun og verðlaun hátíðarinnar veitt. Valið var erfitt og því var ákveðið að veita tvenn aukaverðlaun að þessu sinni. Ánægjulegt er að segja frá því að báðir aðilarnir sem hlutu aukaverðlaunin eru að taka þátt á hátíðinni í fyrsta sinn.
Handverksmaður ársins 2014
Kristín Þórunn Helgadóttir - Fjöruperlur
Umsögn valnefndar: Kristín nýtir efnivið úr náttúrunni á frumlegan og áhugaverðan hátt og hefur þróað aðferðir til að vinna úr honum svo afraksturinn verður falleg vara þar sem litir, munstur og form náttúrunnar fá að njóta sín í einfaldleika sínum en í nýju samhengi.
Sölubás ársins 2014
Hespa – Guðrún Bjarnadóttir
Umsögn valnefndar: Margbreytileiki og látleysi skapa fallega heild
Hvatningarverðlaun
Hildur Harðardóttir – Hildur H. List-Hönnun
Umsögn valnefndar: Hvert og eitt þessara einstöku dýra lýsa miklum sköpunarkrafti
Hvatningarverðlaun
Erling Andersen - Módelbátar
Umsögn valnefndar: Vandað handverk sem greinilega er unnið af mikilli natni
Valnefnd skipuðu:
Arnar Árnason – bóndi á Hranastöðum og stjórnarmaður Handverkshátíðar
Björg Eiríksdóttir – myndlistarmaður og kennari
Rósa Húnadóttir – þjóðfræðingur og með próf í menningarmiðlun
Verðlaunagripirnir eru allir og hannaðir af Einari Gíslasyni myndlistamanni frá Brúnum í Eyjafirði
Samstarfið við Saga Travel lukkaðist vel, en þeir sáu um sætaferðir á hátíðina frá Akureyri og verður samstarfinu haldið áfram á næsta ári. Stjórnendur hátíðarinnar vilja nýta tækifærið og þakka sýnendum og gestum fyrir komuna og við hlökkum til að taka á móti ykkur á næsta ári.
Athugasemdir