Handverkshátíđ 2014 lauk á sunnudag

Handverkshátíđ 2014 lauk á sunnudag Handverkshátíđ 2014 lauk í gćr. Stjórnendur hátíđarinnar eru ánćgđir međ ađsóknina en gert er ráđ fyrir ađ hátíđin

Fréttir

Handverkshátíđ 2014 lauk á sunnudag

Handverkshátíð 2014 lauk í gær. Stjórnendur hátíðarinnar eru ánægðir með aðsóknina en gert er ráð fyrir að hátíðin hafi fengið um 15.000 heimsóknir.


Eftirtektarvert var hversu vandaðar vörur voru á boðstólnum í ár og hversu mikinn metnað sýnendur höfðu lagt í sýningarbása sína. Handverksmarkaður fór fram á föstudeginum og sunnudeginum með 20 þátttakendum hvorn daginn og vakti hann svo mikla lukku að búast má við að hann verði árlegur viðburður.


Laugardeginum lauk með frábærri kvöldskemmtun og verðlaun hátíðarinnar veitt. Valið var erfitt og því var ákveðið að veita tvenn aukaverðlaun að þessu sinni. Ánægjulegt er að segja frá því að báðir aðilarnir sem hlutu aukaverðlaunin eru að taka þátt á hátíðinni í fyrsta sinn.


Handverksmaður ársins 2014

Kristín Þórunn Helgadóttir - Fjöruperlur

Umsögn valnefndar: Kristín  nýtir efnivið úr náttúrunni á frumlegan og áhugaverðan hátt og hefur þróað aðferðir til að vinna úr honum svo afraksturinn verður falleg vara þar sem litir, munstur og form náttúrunnar fá að njóta sín í einfaldleika sínum en í nýju samhengi. 

 

Sölubás ársins 2014

Hespa – Guðrún Bjarnadóttir

Umsögn valnefndar: Margbreytileiki og látleysi skapa fallega heild

 

Hvatningarverðlaun

Hildur Harðardóttir – Hildur H. List-Hönnun

Umsögn valnefndar: Hvert og eitt þessara einstöku dýra lýsa miklum sköpunarkrafti

 

Hvatningarverðlaun

Erling Andersen - Módelbátar

Umsögn valnefndar: Vandað handverk sem greinilega er unnið af mikilli natni

 

Valnefnd skipuðu:

Arnar Árnason – bóndi á Hranastöðum og stjórnarmaður Handverkshátíðar

Björg Eiríksdóttir – myndlistarmaður og kennari

Rósa Húnadóttir – þjóðfræðingur og með próf í menningarmiðlun

 

Verðlaunagripirnir eru allir og hannaðir af Einari Gíslasyni myndlistamanni frá Brúnum í Eyjafirði

 

Samstarfið við Saga Travel lukkaðist vel, en þeir sáu um sætaferðir á hátíðina frá Akureyri og verður samstarfinu haldið áfram á næsta ári. Stjórnendur hátíðarinnar vilja nýta tækifærið og þakka sýnendum og gestum fyrir komuna og við hlökkum til að taka á móti ykkur á næsta ári.


Athugasemdir

25.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst