Leikfélag Fjallabyggðar. Allra, allra síðasta sýning

Leikfélag Fjallabyggðar. Allra, allra síðasta sýning Allra, allra síðasta sýning á gamanleiknum Brúðkaup, sem saminn og leikstýrður er af Guðmundi

Fréttir

Leikfélag Fjallabyggðar. Allra, allra síðasta sýning

Allra, allra síðasta sýning á gamanleiknum Brúðkaup, sem saminn og leikstýrður er af Guðmundi Ólafssyni, fer fram í dag, miðvikudag kl. 20:00 í Tjarnarborg.
 
Tæplega 1.200 manns hafa komið í menningarhús okkar Fjallbyggðinga, Tjarnarborg, og skemmt sér konunglega, og hafa viðtökur sem leikarar hafa fengið í sínu daglega lífi verið ótrúlegar.
 
Höfundurinn og leikstjórinn sjálfur mun heiðra okkur með nærveru sinni á lokasýningunni, en hann mun bregða sér í hlutverk hins óborganlega séra Egils.
 
Ekki missa af þessari allra síðustu sýningu Bæjarlistamanns Fjallabyggðar árið 2014 - sjáumst í Tjarnarborg!
 
Miðapantanir hjá Helenu í síma 845-3216.

Athugasemdir

24.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst