Leikfélag Fjallabyggðar. Allra, allra síðasta sýning
sksiglo.is | Almennt | 03.12.2014 | 13:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 124 | Athugasemdir ( )
Allra, allra síðasta sýning á gamanleiknum Brúðkaup, sem saminn og
leikstýrður er af Guðmundi Ólafssyni, fer fram í dag, miðvikudag kl. 20:00 í Tjarnarborg.
Tæplega 1.200 manns hafa komið í menningarhús okkar Fjallbyggðinga,
Tjarnarborg, og skemmt sér konunglega, og hafa viðtökur sem leikarar hafa fengið í sínu daglega lífi verið ótrúlegar.
Höfundurinn og leikstjórinn sjálfur mun heiðra okkur með nærveru sinni
á lokasýningunni, en hann mun bregða sér í hlutverk hins óborganlega séra Egils.
Ekki missa af þessari allra síðustu sýningu Bæjarlistamanns
Fjallabyggðar árið 2014 - sjáumst í Tjarnarborg!
Miðapantanir hjá Helenu í síma 845-3216.
Athugasemdir