Pylsuveisla kirkjuskólans var sunnudaginn 13. apríl

Pylsuveisla kirkjuskólans var sunnudaginn 13. apríl 13. apríl síðastliðinn var síðasti kirkjuskólinn fyrir sumarfrí. Boðið var til pylsuveislu og það var

Fréttir

Pylsuveisla kirkjuskólans var sunnudaginn 13. apríl

13. apríl síðastliðinn var síðasti kirkjuskólinn fyrir sumarfrí. Boðið var til pylsuveislu og það var vægast sagt óvenju margt um karlmanninn í kirkjuskólanum þann daginn.
 
Þetta var bara eins og að vera kominn í feðra orlof og karlmennirnir sem mættu og voru komnir yfir fermingu hreinlega misstu sig í pylsuáti og almennri ánægju með veturinn því oft á tíðum hafa þau Siggi, Rut og Viðar ásamt fermingarbörnum slegið upp vöfflu-, ávaxta- og alls konar veislum í kirkjuskólanum. 
 
Að sjálfsögðu var ég með myndavélina og smellti af nokkrum myndum ásamt því að tekið var upp myndband þar sem börnin sjást syngja svona líka ljómandi vel. Sumir dönsuðu af meiri innlifun en aðrir.
 
Ég veit um nokkra aðra en mig sem bíða alveg snarspenntir eftir næsta kirkjuskólaári. Kannski verður nýi örbylgjuofninn notaður þá. Hver veit?
 
kirkjuskólinnOg Skarphéðinn grillaði og grillaði og grillaði og ...........
 
KirkjuskólinnOg Doddi smakkaði og smakkaði og smakkaði og.......
 
KirkjuskólinnFlottur hópur.
 
KirkjuskólinnOg svo beið hópurinn eftir að grillmeistarinn væri klár með pylsurnar.
 
KirkjuskólinnRut sá um að allt væri í röð og reglu. Sinnep, tómatsósa, hrár laukur, steiktur laukur og remúlaði. Allt eins og það átti að vera.
 
KirkjuskólinnMikael beið alveg sallarólegur eftir því að pylsurnar væru klárar.
 
KirkjuskólinnSiggi var harður á því að það væri bara ein pylsa á mann fyrir pabbana. En hvort hann fór eftir því sjálfur er svo alveg hreint allt annað mál og þegar var minnst á þessa "ein pylsa á mann" reglu þá sagði hann : "sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum". Þetta sagði hann semsagt á fjórðu pylsu.  Þannig að það var fátt um steinagrýtingar þann daginn þó svo að ég persónuleg, yfir og undirritaður hafi átt löglegan og siðferðislegan rétt á því kasta steini því eins og allir vita er ég einn af fáum sem kann mér hóf í mat og drykk og hlýði fyrirmælum til hins ýtrasta. 
 
Og svo miklu meira af myndum hér.
 
Og svo eitt stutt myndband í lokin.

 
 

Athugasemdir

26.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst