Skíðasvæðið í Skarðsdal er opið í dag

Skíðasvæðið í Skarðsdal er opið í dag Skíðasvæðið í Skarðsdal verður opið í dag frá kl. 11:00 - 16:00 Mikill snjór er á svæðinu, allt frá einum metra

Fréttir

Skíðasvæðið í Skarðsdal er opið í dag

Skíðasvæðið í Skarðsdal verður opið í dag frá kl. 11:00 - 16:00  
 
Mikill snjór er á svæðinu, allt frá einum metra upp í átta metra.   
 
Skarðsrennsli fer fram kl. 13:00 og verður grillað á eftir. 
 
Skarðsrennsli er 3 km braut sem byrjar í fjallaskarði (Hrólfsvallardalur, alveg hreint sérstaklega fallegt nafn á þessum dal) fyrir ofan Búngulyftu og niður Miðbakka og yfir T-lyftusvæðið og til baka niður að Skíðaskála. 
 
Vegleg verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin, en tímataka fer fram með skeiðklukku. Bæði fyrir skíði og bretti. 
 
1. Verðlaun. 
Vetrarkort 2014-15 fyrir 5 manns. Út að borða á Kaffi Rauðku. Morgunverður  í Aðalbakaríi   
 
2. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 fyrir 4 manns. Pizza á Allanum  
 
 3. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 3 manns. Pizza á Torginu  
 
 Skarðsrennsli er 3 km braut sem byrjar í fjallaskarði (Hrólfsvallardalur) fyrir ofan Búngulyftu og niður Miðbakka og yfir T-lyftusvæðið og til baka niður að Skíðaskála. Vegleg verðlaun fyrir fyrstu 3, en tímataka fer fram með skeiðklukku. Bæði fyrir skíði og bretti. 
 
Líklega verður þetta einn af  síðustu dögunum sem Skíðasvæðið verður opið fyrir sumarið þannig að nú ættu sem flestir að nota tækifærið og skella sér á skíði.  

Athugasemdir

26.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst