Þjónustu- og upplýsingamiðstöð og safnahús í Ólafsfirði
Af vef fjallabyggd.is
Líkt og flestum íbúum Fjallabyggðar er kunnugt er verið að gera breytingar á 3ju hæð í ráðhúsinu á Siglufirði í þeim tilgangi að sameina starfsmenn bæjarskrifstofunnar á einn og sama stað og munu þeir starfsmenn sem hafa haft aðsetur í Ólafsfirði flytjast í ráðhúsið nú í byrjun maímánaðar. Þrátt fyrir það leggur bæjarstjórn Fjallabyggðar áherslu á að áfram verði þjónusta - móttaka fyrir bæjarbúa, búsetta í Ólafsfirði, í núverandi húsnæði bæjarskrifstofunnar að Ólafsvegi 4 eins og verið hefur og þar geti þeir rekið sín mál. Sú þjónusta sem í boði verður er m.a.:
· Deildarstjórar bæjarfélagsins munu vera með fasta viðtalstíma.
· Bæjarstjóri verður þar með fasta viðveru.
· Félagsþjónustan mun hitta sína skjólstæðinga á þessum stað.
· Fundaraðstaða verður til staðar fyrir nefndarfundi og önnur fundarhöld.
· Önnur þjónusta svo sem þjónusta Vinnumálastofnunar, atvinnuleysisskráning og viðtöl við atvinnulausa mun fara þar fram.
· Virk starfsendurhæfing og starfsendurhæfingar norðurlands verða áfram með óbreyttum hætti á staðnum.
Sjá nánar hér.
Athugasemdir