Umfangsmikil rannsókn um áhrif Héðinsfjarðarganga

Umfangsmikil rannsókn um áhrif Héðinsfjarðarganga Sjálfvirkir umferðateljarar, spurningalistar ferðamanna, búsetugögn úr þjóðskrá, viðhorfskannanir meðal

Fréttir

Umfangsmikil rannsókn um áhrif Héðinsfjarðarganga

www.sk21.is
www.sk21.is

Sjálfvirkir umferðateljarar, spurningalistar ferðamanna, búsetugögn úr þjóðskrá, viðhorfskannanir meðal íbúa og viðtöl við fólk voru meðal þeirra gagna sem safnað var bæði í aðdraganda opnun Héðinsfjarðargangna sem og eftir opnun þeirra.

Viðamikil rannsókn fór fram á áhrifum Héðinsfjarðarganga en heildarniðurstöður hennar voru kynntar á málþyngi í Tjarnarborg á Ólafsfrði í gær. Ljóst er að áhrif gangnanna eru mikil fyrir íbúa Fjallabyggðar og hefur viðsnúningur orðið á íbúaþróun, atvinnumöguleikar og menntunartækifæri stóraukist, fólksfjölgun hefur orðið í Siglufirði og fólskfækkun stöðvast í Ólafsfirði. Bæjarbúar eru duglegir að sækja menningarviðburði og skemmtanir milli bæjarkjarnanna og ungt fólk er tilbúnara til að búa áfram í Fjallabyggð heldur en í öðrum litlum samfélögum á landsbyggðinni. 

Þrátt fyrir að flest sé jákvætt þá er samt sem áður vísir um minni ánægja sé með löggæslu og aðgengi að heilbrigðismálum, þá telja Ólafsfirðingar einnig að það halli á þá í opinberri starfsemi og væntingar rannsóknaraðila um aukinn fjölda gistinátta og umferð um Trölaskagann er tengist ferðamönnum hafa ekki gengið eftir.

 

Ljósmynd Steingrímur Kristinsson

www.sk21.is 


Athugasemdir

22.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst